I´m to cool for you anyway
miðvikudagur, nóvember 29, 2006
 
" ég er búinn að uppgötva nokkuð afar mikilvægt. Heimurinn, og þar með talinn minn innri heimur, er mjög sérstakur staður. Ég skil nú að það að ná árangri í ytri heimi hefur ekkert að segja nema þú hafir náð árangir í hinum innri"

Ansi stór naflaskoðun í gangi !!

mánudagur, nóvember 27, 2006
 
nokkrar góðar...
Alltaf svo mikil dama! Sunna alveg orðlaus yfir mér og Stínu þetta kvöld, vorum í tómu rugli.

Mikið hlegið þetta kvöld, Allý sæta fór á kostum. Svava og Kristín Ólöf ætla að vera rosalega fyndnar þessi jólin :)


sunnudagur, september 10, 2006
 
reyni enn einusinni
spurning hvort ksí hafi einhver undarleg völd á tölvunni minni en ég er búin að reyna nokkru sinnum að birta hérna smá skrif eftir landsleikinn á móti spánverjum.... tjekkum einu sinni enn

0-0 þokkalegustu úrslit, miðað við hverjir voru mótherjar ,að þessu sinni hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Fékk herra Eyjólfur Sverris nokkur prik frá mér í viðtalinu eftir leikinn. Talaði um að hann vildi að menn sem væru að spila inná vellinum spiluðu með hjartanu og væru stoltir afþví að spila fyrir land sitt. Aðsjálfsögðu eiga allir landsliðsmenn að spila með því hugarfari. Aftur á móti ef ég væri Eyjólfur, og með þetta sjónarmið á hlutunum einsog hann sagðist vera með, myndi ég láta menn einsog Ívar Ingirmars, Brynjar Björn og Jóa Kalla vera útí kuldanum. Allir þessir menn gáfu ekki kost á sér í fyrri leikjum útaf þáverandi þjálfurum. Svo alltí einu núna eru þeir game í að koma og spila afþví það er kominn nýr þjálfari. Eyjó kallinn getur nú alveg sagt sér að svona menn eru ekki að spila af stolti og fyrir þjóð, heldur einungis hvað henntar þeim. Hvort sem þeim líkaði ekki leikskipulagið hjá fyrrverandi þjálfurum eða lenntu uppá kannt eða hvað svosem málið var, þá breytir það engu. Burtu með svona lélega gæja!! (ætla samt ekkert að fara að hengja mig uppá að ég viti alla söguna í þessum málum) Held ég nú líka að það mætti koma nokkrum öðrum mönnum þarna í burtu. Svona það minnsta, allra allra minnsta sem landsliðsmenn, í raun allir sem telja sig vera íþróttarmenn er að vera í formi. Neinei í okkar landsliði eru menn með rass, bumbu og kinnar, what´s that about?!?!? Alls ekki allur og margir í toppformi og leggja allt sem þeir eiga í leikinn. Má þá helst nefna Hafnfirðinginn Hannes Sig, Grétar Rafn, Hemma Hreiðars og fleirri gæja. Og til að fara hinu megin á pólinn þá eru menn einsog Veigar Páll með rass og bumbu, sömuleiðis Jói Kalli og átti ég nú erfitt með mig þegar Óli Skúla kom í mynd í fyrsta sinn, maðurinn er massa kinnar bara. Eyjólfur fær prik einnig fyrir að gefa nýjum leikmönnum sjens, sérstaklega þeim sem eiga það skilið. Voru einhverjir þarna sem áttu akkurat engan vegin skilið einhverja endurkomu í landsliðið, þó svo að það standi akkurat núna hjá viðkomandi: Núvernadi félag FH. En núna er bara að horfa fram á veginn og vona það besta fyrir liðið okkar, jafnvel koma mönnum í form og þeir sem eru með fituprósentu meira en 20 (einsog einhverjar kellingar- einog sumir í liðinu) verða bara sendir út á hlaupabraut og látnir hlaupa þangað til að appelsínuhúðin er farin, þá er ég sátt allavega og vona að liðinu gangi vel í næstu leikjum. Áfram Ísland!!!

mánudagur, ágúst 21, 2006
 
Marmaris

Sweet.... vika í þetta!!











Við frænkurnar áðkváðum að slá þessu uppí smá kæruleysi og bókuðum okkur ferð til Tyrklands....
Ferðin mun einkennast af sólböðum, léttum klæðnaði, áfengi, eyðslu, tyrkneskum snyrtimeðferðum af ýmsu tagi, 33 stiga hita, sjóferðum, bæði syndandi og á ýmis konar farartækjum, djammi og danserýi. Eflaust ófárir sem öfunda okkur hálfnöfnur.

föstudagur, ágúst 11, 2006
 
Rockstar Supernova
Maður telst varla maður með mönnum án þess að mynda sér einhverja skoðun á þessum blessaða þætti. Viðurkenni ég alveg að hafa oftar en einu sinni minn síþreytta kropp og vakað til að horfa á þáttinn. Atfur á móti var Rockstar INXS í miklu meira uppáhaldi hjá mér, miklu betri lög sem þau voru látin syngja og tala nú ekki um miklu betri söngvarar/tónlistarmenn sem voru í þeim þætti. Og ófeimin viðurkenni ég alveg að hafa splæst í nokkur tár þegar minn maður vann ekki.....

Svo maður byrji nú á byrjuninni á þessari blessaðri vitleysu - Tommy, Jason og Gilby - getur varla talist félagsskapur sem nokkur heilvita maður vill eltast við. Tala nú ekki um viljiru ná langt í tónlist. Til að gera langa sögu stutta þá er fæ ég aulahroll við allt sem þessir menn gera. Þegar þeir spila! Þegar Tommy kemur með einhver kynferðisleg comment! Þegar Jason tekur og grettir sig þegar einhver er að syngja! Stoltið sem skein af Gilby þegar hann gaf þeim gítarana! Æjj mér finnst þetta ferlega súrt allavega.

Hvað "okkar" mann varðar, tel ég hann þokkalega heppinn með það hversu margir fáranlega lélegir keppendur eru í þessari keppni. Tel það eiga eftir að koma honum soldið áfram. Þó svo ég geti alveg viðurkennt að hann er að standa sig ágætlega bara. Aftur á móti átti ég í erfiðleikum með sjálfa mig þegar hann sagðist vera einn af topp söngvurum landsins. Magni ekki ljúga!

En jamm víst þetta var það sem var í boði að halda með, ákvað ég að halda með sætasta guttanum bara....en hann er dottinn út þannig að í raun veit ég ekki alveg afhverju ég ætla að halda áfram að horfa á þetta.....kannski það sé fínt smá aulahroll yfir hinum til að minna mig á hversu ógeðslega ég myndi rústa þessari keppni ef ég hefði splæst í þetta.

En Supernova -not my cup of tea!

En ein mynd af sæta fylgir með....



miðvikudagur, ágúst 09, 2006
 
bueno bueno
Ætli skvísan fari ekki að kalla þetta gott af leti og byrji aftur með hin æsiskemmtuleg skrif sín aftur á þessari síðu, sem ansi margir eru búin að bíða spenntir og suða og tuða mikið yfir að ekkert hafi verið birt. Enda telst ég fáranlega góður penni og hef nú stytt stundina hjá ansi mörgum með mjög svo innihaldsríkum pistlum um hugleiðingar mínar um lífið og tilveruna.

Takk fyrir, komið 9. ágúst....hummm sumarið er bara að vera búið. Og fór það nú einsog hendi væri veifað, svo fljótt var það. Stefnan samt sett á að svindla smá og lengja sumarið pínu með því að skella sér smá útí sólina, kemur allt í ljós. En aftur á móti kemur hreint ótrúlega skemmtilegur og ekkert smá spennandi tími með haustinu þannig að það er sko engan vegin svarta gardínan yfir því að það sé að koma.

Þetta sumar er búið að einkennast af vinnu og djammi, ögn öðruvísi en öll önnur sumar - vinna og fótbolti. Var víst ögn óraunhæft að detta akkurat inní tímabilið úr meiðslunum, þannig að það þurfti að fara smá meiri tími í endurhæfinu og svona og er stefnan sett á fótboltaæfingu í sep. eftir að vera búin að koma mér sjálfri í geggjað form og hnéið orðið fullkomið. Vonum að það þurfi ekki að skera í kálfana á mér einsog var planið þegar ég byrjaði aftur, kemur í ljós. En jamm, djamm og djús allar helgar má segja.... æjj ekki að sjá það vera að fara að gerast næstu árin þannig að why not. Enda á ég svo ógeðslega mikið að skemmtilegum vinkonum sem eru alltaf að djamma. Ætla að splæsa í nokkrar valdar myndir frá öllum þessum djömmum fljótlega. En tímabilið búið og endaði ég það með því að djamma í bænum um verlsunarmannahelgina, hef oft djammað betur en þetta var fínt. Nú er bara að harkan, og back to 56 kg með fituprósentu 12 ;)

.....good times comming up

mánudagur, júlí 10, 2006
 

9 mánuði, 1 viku, 2 daga og 5 klukkutíma!!!!

..en ég meina hver var að telja?!?!


Powered by Blogger